17ágúst

i´m back;)

jæja er ekki kominn tími til að skrifa aðeins;)????

Ég er semsagt komin úr sumarfríi, var í alveg 5 vikur og vá hvað  það var æðislegt, en samt var ég ekkert svekkt yfir að fara vinna, finnst svo gaman i vinnunni minni;)..

VIð höfðum það alveg rosalega gott í fríinu, fórum 2 sinnum til ak og vorum í fyrra skiptið í 1 og1/2 viku og í hitt skiptið vorum við í 4 daga, alltaf jafn yndilsegt að koma "heim"...

Þessi vika verður hins vegar alveg frábær, Sigurjón, Þóra og Litla Matthildur komu til okkar í gær og borðuðu með okkur, alltaf svo gaman að hitta þau og þá sérstaklega hana Matthildi, hún er algjör dúlla. SVo á morgun eru Guðbjörg og Höskuldur að koma í mat og ælta kannski að gista hjá okkur, hlakka ekkert smá til að fá þau og þá sérstaklega spila mana, það er algjör snilld að spila mana með Guðbjörgu frænku,:)..hehe....SVo á föstudaginn þá kemur mamma til okkar og gistur eina nótt, pabbi og strákarnir verða að veiða upp á eiðum svo hún ætlar koma og vera hjá okkur eina nótt:)..Og SVO á laugardaginn þá kemur hún Signý mín með famelíuna sína og ætlar að vera hjá okkur í eina nótt, ohh ég get ekki beðið eftir að fá hana austur og sýna henni nafla alheimisins REYÐARFJÖRÐ:)..
Semsagt þetta verður yndisleg vika og það verður sko tómlegt hérna í kotinu á melnum á mánudaginn:(..

nenni ekki skrifa meir, 

17. ágúst 2006 klukkan 04:18
Eva Dögg Pálsdóttir
2 athugasemdir
17júlí

Er ađ fara í sćluna....;)

Hlelgin er sko búin að vera æðisleg, mikið unnið í garðinu og sonna svo þetta er allt að koma  hjá okkur, fórum á föstudaginn að skoða kárahnjúka og vá hvað það tók langann tíma mar!!...vorum alls 5 tíma fram og til baka, ég hélt að þetta væri bara smá svona skrepp en neinei þetta tók bara allann daginn. EN það var samt rosa gaman að sjá þetta og ekki sá ég neina náttúru sem fólk er að ibba sig útaf, það er bara enginn náttura þarna til að skemma, bara sandur og grjót!!!..er sko alveg vissum að það fólk sem er búið að mótmæla þessu sem mest það hefur aldrei farið þarna upp eftir og skoðað hvað það sé að mótmæla!!!

Við erum að fara úr bænum í sumarfrí, ætlum í bústaðinn í eina viku, mamma og pabbi eru að fara til Austurríkis og við verðum með strákana með okkur, Aron kemur samt ekki fyrr en um helgina, er að worka skillurri;)..hehe...Ohh það verður æði að vera í skóginu, grilla góðann mat, sofa, fara í pottinn, sund og bara njóta þess að vera saman:)..

Jæja ég nenni eki blogga meir, er komin í 2 vikna pásu, er nú samt búin að vera rosalega dugleg að blogga, er þaggi;)..kem með ferðasöguna þegar ég kem heim, og kikkiði svo inn á síðuna hans Bjarts var að setja inn nokkrar myndir...http://barnaland.is/barn/12630

kveð að sinni.....
17. júlí 2006 klukkan 21:06
Eva Dögg Pálsdóttir
2 athugasemdir
14júlí

Alltaf besta veđriđ á Reyđarfirđi;)..

Ohh vá hvað það er gott að vera komin í frí, alveg frábært!!....Binni baby var í frii í dag eftir hádegi og svo verður hann í fríi á morgun, svo það verðu hægt að nýta tímann í garðverkin, alveg endalaust af verkefnum þegar maður býr svona niður á jörðinni;)..Vorum á fullu í dag að bera á fína pallinn okkar, ætlum að hafa hann brúnann, svo erum við að setja svona möl meðfram húsinu þar sem bílastæðin eru, svo þetta verður alveg rosalega  huggulegt hjá okkur þegar við erum búin:)..

Svo fer heldur betur að styttast í að við förum norður, förum á þrijudaginn í næstu viku og förum við bara beint í sumarbústaðinn, ohh hvað það verður æði að vera þar!!...verðum alveg í viku í bústaðnum, mamma og pabbi eru að fara til austurríkis svo við verðum með Anton hjá okkur og svo kemur "litli bróðir" hannn Aron um  helgina...GET EKKI BEÐIÐ!!!;)..

Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra  núna, hafið það gott hvar sem þið eruð og muniði eftir að meta það sem þið eigið....

kveðja 
Eva Dögg sem er komin með alveg þokkalega grúfi hair;)..hehe 
14. júlí 2006 klukkan 04:26
Eva Dögg Pálsdóttir
1 athugasemd
11júlí

Sól sól sól skýn á mig....

Já ég ákvað að skipta um blogg, held nú líka að ég ætti að reyna að bæta mig í þessu blessaða bloggi, sjáum til hvernig mér gengur;)..hehe...
Helgin var alveg æðisleg hjá okkur, mamma og co komu til okkar og vá hvað það var notalegt, maður finnur alveg hvað það er erfitt að hafa þau svona langt í burtu:(..En við erum að fara norður eftir viku og verðum alveg í eina viku, svo það er bara frábært:)..

Ég er komin í sumarfrí, búið að vera alveg crazy í vinnunni seinust vikur svo þetta frí mitt var sko kærkokmið!!..Hef nú samt aldrei verið svona lengi í fríi í einu, er alveg í 5 vikur;)..Leikskólinn lokar svona lengi hérna svo einhver verður að vera með babyið:)..Brynjar á svo viku eftir í vinnu og þá er hann kominn í frí..

Jæja  ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, þarf að fara setja svona kláðastillandi krem á litla guttann minn þar sem honum tókst að næla sér í hlaupabólu...mjög góð tímasetning þar sem við erum bæði komin í frí
11. júlí 2006 klukkan 02:58
Eva Dögg Pálsdóttir
11 athugasemdir

Ađalvalmynd

Könnun

Vinnur Magni rockstar??

Auglýsing